Hugmynd

Við ætlum okkur að aðstoða einangrað fólk við að upplifa Ísland með notkun á sýndarveruleika. Sama hver ástæðan er fyrir einangruninni, hvort sem það er Covid-19, félagsfælni, veikindi eða elli þá ættu allir að hafa möguleikann á að upplifa ísland. Skapa jafnt aðgengi allra að íslenskri upplifun með aðstoð sýndarveruleika tækni, Koma hreyfihömluðu fólki upp á fjallstinda og langveikum aftur á heimaslóðir svo fátt sé nefnt..

Þetta verkefni mun halda áfram af fullum krafti að aðstoða fólk sem lifir við félagslega einangrun þó svo að þessi krísa gangi yfir. Okkar trú er sú að aðstoða megi ótal marga aðila í komandi framtíð með notkun sýndarveruleikatækni. Ásamt velferðar kostinum mun einnig sitja eftir gullkista af íslensku myndefni sem nota má á margvíslega vegu í nánustu framtíð. Sem dæmi um notagildi eru möguleikar í ferðaþjónustu, auglýsinga gerð, kennslustofum, kvikmyndagerð og margt fleira, en aðal djásnið í gagnabankanum er náttúrulega varðveiting Íslands í sinni núverandi mynd.

(The effects of virtual reality on mental wellness: link)

Áskoranir

Ekki mikið til af Íslensku myndefni sem styður við sýndaveruleika tækni.

Við erum stolt

Að hafa fundið lausn sem veitir öllum jafnt aðgengi að íslenskri upplifun ásamt því að skapa ný störf í ört vaxandi iðnaði.

Hvað við höfum lært

Að þróun sýndarveruleika er kominn talsvert lengra en við reiknuðum með í upphafi og nýting þess er aukast gífurlega hratt.

Hvert er framhaldið fyrir Upplifum Ísland

Að útvega fjármagni og koma verkefninu á fót í samstarfi við stofnanir og framtíðar notendur.

Built With

  • adobe-after-effects
  • adobe-character-animator
  • adobe-premear
Share this project:

Updates