Svifryksmengun er vandamál
Svifryksmengun hefur neikvæð áhrif á heilsu fólks og í þéttbýli á Íslandi eru bílar og allt sem þeim fylgir mestu mengunarvaldarnir. Aðeins hluti af mengunarinnar frá umferð kemur með útblæstrinum út um púströrið. Vegslit og uppþyrlun svifryks er líka ein stærsta uppsprettan samkvæmt sérfræðingum Umhverfisstofnunnar. Því er ljóst að þrátt fyrir orkuskipti í samgöngum mun svifryk ekki heyra sögunni til og því er tækifæri til að nýta gögn og tækni til lausna.
Spálíkan
Í dag má finna inni á loftgæði.is ýmsar upplýsingar um svifryks- og loftmengun. Þar má sjá mæligildi í rauntíma víðsvegar um landið en gögnin eru öll athuganir og segja því aðeins til um hvað hefur nú þegar skeð. Ekki er hægt að segja til að hvernig morgundagurinn muni líta út.
Okkar lausn stefnir að því að spá fyrir um magn svifryks í loftinu nokkra daga fram í tímann. Á svifryksspánni verður hægt að sjá spágildi fyrir svifryk næstu 72 klukkustundirnar. Auk þess er hægt að sjá dagsspá næstu 7 dagana.
Hægt verður að skrá sig á póstlista til að fá tilkynningar fyrir fram ef spágildi svifyks fer yfir viðmiðunarmörk. Þannig er hægt að auka vitundavakningu almennings af loftmengun og á sama tíma hægt að hvetja fólk til að nýta vistvænar samgöngur og þar með minnka svifryksmengun.
Uppbygging spálíkansins
Til að búa til svifryksspána var notast við gögn frá Umhverfisstofnun og Veðustofu Íslands. Annars vegar voru sögulegum veðurathugunar-, svifryks- og loftmengunargögn tvinnað saman, allt frá árinu 2015 til dagsins í dag. En einnig eru rauntímagögn með nýjustu mælingum hverju sinni notuð í gegnum API frá stofnununum. Við athugunargögnin er svo bætt við nýjustu veðurspá á hverjum tíma.
Spálíkanið sjálft byggir á gervigreind sem smíðuð var í python og notast við svokallað tauganet sem þjálfað er á sögulegu gögnunum. Svo er veðurspáin notuð í stað sögulegra veðurathugunargagna til að spá fyrir um svifryks- og loftmengun fram í tímann.
Mælaborðið er smíðað í Node Red. Á mælaborði svifryks- og loftmengunarspárinnar er hægt að skoða spágildi fyrir mengunarvalda. Einnig væri í framtíðinni hægt að skrá sig á póstlista til að fá tilkynningu ef spáð er fyrir um mikla svifryks- og loftmengun. Mælaborðið er hýst hjá AWS og er öllum opið, hægt er að skoða mælaborðið hér.
Næstu skref
Næstu skref teymisins verða að vinna með Umhverfisstofnun til að sameina mælaborð svifryksspárinnar og núverandi mælaborðs á loftgæði.is. Þannig getur fólk séð bæði mæld gildi og spágildi á sama stað. Einnig viljum við vinna með Strætó til að skoða möguleikann á því að bjóða íbúum afslátt eða frítt í strætó þegar spáð er mikilli svifryksmengun.
Built With
- amazon-web-services
- csv
- json
- keras
- node-red
- python
- tensor-flow
- ust.api.is
- vedur.is
- xml
Log in or sign up for Devpost to join the conversation.