Inspiration
Við greiningu á opnum ríkisreikningum blöstu nokkrar spurningar við. Af hverju eru sambærilegar ríkisstofnanir að kaupa sambærilegar vörur af ekki einum, ekki tvemur, heldur oft mörgum birgjum? Hver er hlutdeild birgja fyrir ákveðna vöruflokka þvert á ríkisstofnanir? Væri hægt að líta á ríkisstofnanir sem eina heild og nýta söguleg gögn til samningarviðræðna og ákvarðana, betur en gert er nú? Hver er innkaupamunurinn á ríkisstofnunum innan sömu greinar, á ákveðnum vöruflokkum, og af hverju stafar sá munur?
What it does
Lausnin er skýr, lifandi yfirsýn innkaupa og viðskiptasambanda ríkisstofnanna í formi mælaborðs. Með lausninni eru Ríkiskaup í stöðu til að semja fyrir ríkisstofnanir í krafti stærðar, með skýrar upplýsingar í höndunum.
How we built it
Lausnin er smíðuð í Power BI og UiPath, ásamt SQL Server tengingu fyrir gögn.
Challenges we ran into
Við smíði þessarar frumgerðar rákumst við á takmörkun varðandi hversu margar línur má flytja inn sem Excel skjal í Power BI. Vegna umfangs gagna við frumgerðarsmíði (gögn verða geymd í gagnagrunni framvegis) ákváðum að velja sérstaka birgja fyrir alla viðskiptavini og nota gögn sem spanna tvö ár.
Accomplishments that we're proud of
Við erum stolt af því að aðal-hluti verkefnis hafi orðið að veruleika og sé þegar nothæft. Við vildum útbúa lausn sem væri úthugsuð frá upphafi til enda. Allir hlutar lausnarinnar eru annað hvort útfærðir, eða útfærslan ákveðin og úthugsuð.
What we learned
Þegar tímalína verkefnis er eins stutt og þessi, skipta gæði verkefnastjórnunar sköpum. Skipting undirverkefna, samræmi milli undir-teyma, svo fátt sé nefnt.
What's next for Nafn verkefnis
Næstu skref eru að koma uppi SQL Server gagnagrunni fyrir gögnin. Fyrir RPA róbotann, þarf að fínpússa ferlið í UiPath. Til að tengja ferlið allt saman þarf að uppfæra gagnatengingu í Power BI mælaborðinu, til að tengjast SQL gagnagrunninum.
ATH Það gæti þurft að veita aðgang að Power BI skýrslunni. Þá þarf að "request-a access". Vinsamlegast hafið samband í síma 690-6025 ef slík vandamál eiga sér stað.
Pitch deck ásamt video-i eru í Zip file undir additional info
Log in or sign up for Devpost to join the conversation.