Inspiration

Upprunalega skoðuðum við hvort Ísland gæti tekið við rafbílavæðingunni, semsagt hvort rafmagnsframleiðsla myndi vera nóg ef allir skiptu yfir í rafmagnsbíl. Svo var til hliðar hversu mikil kolefnislosun myndi minnka hjá ef hann myndi skipta út bensín/dísel bíl yfir í rafmagns.

En eftir að við skoðuðum margar reiknivélar sem telja sig geta reiknað út kolefnisspor notendanna fundum við út að margar þeirra hafa eitt stórt vandamál. Þeim vantar grunnlínu svo hægt sé að bera sig saman við meðal mann.

Verkefninu var breytt í að endurhæfa þessar reiknivélar til þess að hafa meðal mann með í útreikningunum.

What it does

Reiknivélin leyfir notandanum að setja inn bílnúmer sitt eða sína eyðslu í L/100 og hversu mikið þeir keyra á mánuði, til þess að reikna út hversu mikið kolefnisspor þeirra er.

How we built it

Við hjá &L notuðum pandas til þessa að taka gagnagrunn frá orkustofnun og hreinsa það verulega til yfir í nothæf gögn.

Kóðinn sem við höfum hreinsar þess ,,skítuga” gagnagrunna í hreina og fína gagnagrunna sem betra er að nota.

Challenges we ran into

Hvað á "skítugur gagnagrunnur" að þýða?

Einfalt, við fundum út að Orkustofnun hafði ekki allt réttar reglur þegar höndlað er töflugerð, svo sem að setja kommur í CSV (Comma seperated values) skrá sem braut hana alveg, þau gleyma einingum og fleira.

Einnig vegna aðra vandamála að þá duttu vefforritararnir okkar út úr verkefninu.

Accomplishments that we're proud of

Við erum mjög stoltir af hversu vel kóðinn okkar hreinsar gagnagrunna. Við erum einnig stoltir af hugmyndinni sjálfri og framtíðar möguleikum hennar.

What we learned

Við lærðum á verkefninu að margar stofnanir eru gjarnar að gleyma einingum þegar kemur að gagnaskráningu og það getur tekið löng símtöl við marga aðila að fá að vita hvaða einingu er verið að nota. Við komumst líka að því að strætó eyðir 41L/100km af díseli og að rafmagn setur það lítið af CO2 í loftið að það er ótrúlegt. Einnig lærðum við að setja upp almennan gagnahreinsikóða sem ætti að vera einfalt að nýta aftur og breyta til þess að hann henti öðrum gögnum.

What's next for &L

Framtíðarmöguleikar &L er að klára að setja upp vefsíðu og selja auglýsinga stofnunum gögn til þess að selja betur rafmagnsbíla. Einnig að bæta við fleiri liðum til að reikna kolefnispor eins og fyrir utanlandsflug og fleira.

Built With

Share this project:

Updates