Inspiration
Innblástur að verkefninu kemur út frá fyrirbyggjandi vægi þess njóta tengsla, sér í lagi hvaða þýðingu það hefur fyrir ung börn að eiga í örugg tengsl við umönnunaraðila fyrstu æviárin. Þá gefst dýrmætt tækifæri til þroska þar sem börn geta prófað sig áfam, lært á eigin tilfinningar og viðbrögð með örugga höfn í sjónmáli. Tengsl eru ekki síður mikilvæg fyrir þá sem eldri eru en tengsl eru forsenda þess að búa við góða heilsu og velferð.
What it does
Er vettvangur fyrir samveru fjölskyldna þar sem í boði verða margskonar upplifanir sem styðja við sköpun og slökun barna og ummönnunaraðila.
How I built it
Þjónustunni má skipta niður í fjóra þætti og verður byggt á áskriftarkerfi
- Opið rými til leiks og samveru
- Tímar í stundatöflu sem miða að slakandi og skapandi tímum fyrir foreldra og börn.
- Námskeið og fræðsla frá sérfræðingum um það sem við kemur foreldrahlutverkinu.
- Viðtalstímar hjá iðjuþjálfa
Challenges I ran into
Okkar stærsta áskorun til að geta byrjað er að finna hentugt húsnæði á viðráðanlegu verði á meðan setrið nær fótfestu.
Accomplishments that I'm proud of
Að fara út fyrir þægindarammann og taka þátt í Hakkaþoni!
What I learned
Hversu hjálplegt það er að geta leitað til mentora og hversu margir eru reiðbúnir að hjálpa og veita góð ráð.
What's next for Hjartaland - tengslasetur
Að eiga samtal við sveitarfélög og ríki um stuðning þeirra til byrja að þróa þjónustuna og sjá hver þörfin er í raun og veru. Til viðbótar að byrja að halda viðburði til að gefa fjölskyldum innsýn inn í þá tíma sem verða í stundartöflu Hjartalands.
Log in or sign up for Devpost to join the conversation.