Inspiration
Nú til dags er algengt að starfsfólk fyrirtækja vinni fjarri höfuðstöðvum fyrirtækisins, t.d. heima hjá sér. Remote starfandi starfsfólk er ekki partur af neinu samfélagi.
Nú til dags vinnur remote-starfsfólk yfirleitt að heiman eða í sameiginlegri skrifstofuaðstöðu þar sem fólk kemur inn og út. Skortur er á þessu félagslega umhverfi sem hefðbundinn vinnustaður býður upp á.
Þetta fannst okkur vera krefjandi verkefni sem hægt væri að leysa á einfaldan máta.
What it does
Fjarski er nýstárlegur vettvangur þar sem fyrirtæki geta reddað þægilegu og félagslegu starfsrými fyrir fjar-vinnandi starfsmenn sína innan veggja annarra vinnustaða víðsvegar á landinu.
Á sama tíma geta fyrirtæki leigt út auð vinnurými og þar með unnið bug á kostnaði þjónustunnar.
How we built it
Við nýttum okkur tól sem heitir Figma til að hanna útlit og virkni vefsíðunnar.
Challenges we ran into
Finna viðeigandi viðskiptalíkan sem hentaði best fyrir þessa tilteknu vöru.
Accomplishments that we're proud of
Bjuggum til einfalt og aðlagandi viðmót og enduðum með viðskiptalíkan sem okkur finnst passa vel við.
What we learned
Vinnustofurnar kenndu okkur margt. Meðal annars að finna og setja sig í spor notandans.
What's next for Fjarski
Smíða fullkláraða vefsíðu og kynna vöruna fyrir fyrirtækjum.
Log in or sign up for Devpost to join the conversation.