Innblástur
Eftir að hafa starfað hjá Reykjavíkurborg bæði í þjónustuverinu og öðrum sviðum, sá ég hversu mikil þörf var á bætingum á verkferlum innanhúss hjá Reykjavíkurborg.
Upplýsingaflæði milli íbúa og borgarinnar er ekki nógu gott þegar kemur að einstaka málum, en það býr til mikla óvissu og pirring hjá íbúum, sem lendir oftast á þjónustuverinu.
Hvað er Dönn
Dönn er snjallsíma app sem gerir íbúum kleift að senda ábendingar um stök mál á nokkrum sekúndum og fylgjast með stöðu þeirra í rauntíma.
Einnig geta íbúar fengið auðveldara aðgengi að upplýsingum, sem þeir þyrftu annars að leita af.
Helstu áskoranir
Helsta áskorunin var að skala verkefnið niður svo ég gæti klárað það á 2 dögum. Það voru margar hugmyndir, og boltar á lofti sem ég þurfti að velja aðeins það allra mikilvægasta úr.
Við erum stolt
Ég er stoltur af þeirri vinnu sem ég lagði í lausnin, og trúi því að Dönn geti verið öflugt verkfæri í höndum metnaðarfullra leiðtoga já Reykjavíkurborg.
Ég lærði ýmislegt
Ég lærði á nýjan hugbúnað sem kallast Proto Pie til þess að útbúa lifandi frumtýpu af appinu.
Næstu skref
Næstu skref Dönn er að byggja upp samstarf með Reykjavíkurborg og taka spjallið með þeim um hvernig Dönn geti nýst þeim sem best.
Built With
- canva
- excel
- protopie
Log in or sign up for Devpost to join the conversation.