Inspiration

Síðustu misseri hefur verið mikið ákall hjá bæði opinberum aðilum, sem og einkaaðilum, til þess að hagnýta gögnin sem verða til í daglegum rekstri betur og sjálfvirknivæða sem mest í sínum rekstri. Bidd lausnin einfaldar og bætir allt útboðsferlið, ber þar helst að nefna notendavænna viðmót, betri gagnaúrvinnslu og sérhannað máltæknilíkan. Máltæknilíkanið mun koma til með að aðstoðað innkaupaaðila í stofnun útboðs m.a. með þarfagreiningu, semja útboðslýsingar, smíða verktakasamninga, tekið saman mikilvæg verktaka skjöl, o.fl. Þetta gerir manneskjunni á bak við verkefnið kleift að einbeita sér aðeins að því að velja aðila sem hentar verkefninu. Í dag tekur allt útboðsferlið, í tilfelli opinbers aðila, 48-129 daga að klára, frá því þeir senda inn beiðni til Ríkiskaupa og aðili skrifar undir samning. Við sjáum fram á að með notkun á Bidd, að þetta ferli verði mun styttra, ásamt því að vefurinn gerir aðilum kleift, sem hafa enga þekkingu á reglugerðinni um opinber innkaup að stofna sjálfir til útboðs. Í dag þurfa flestir opinberir aðilar að sækja sér kostnaðarsama sérfræðiþekkingu frá Ríkiskaupum, enda er reglugerðin um opinber innkaup flókin og vefirnir sem notaðir eru, eru það líka. Máltæknilíkan Bidd verður þróað með íslensku reglugerðina í huga og mun því semja útboðslýsingar og önnur gögn í samræmi við hana. Vegna þess, sjáum við fram á að með notkun á Bidd vefnum muni flestir opinberir aðilar geta séð sjálfir um stofnun á flestum verkefnum og felur það í sér gríðarleg hagræðingartækifæri fyrir hið opinbera. Þar sem Bidd gjörbreytir umhverfi opinberra innkaupa, sjáum við fyrir okkur nýjan tilgang fyrir Ríkiskaup. Ríkiskaup gætu frekar einbeitt sér að gagnadrifinni hagræðingu í opinberum innkaupum, og að vera með ákveðna yfirsýn yfir heildarmyndina, fremur en að vera sá aðili sem framkvæmir sjálf útboðin. Sparnaðurinn sem myndast vegna þess gæti orðið gríðarlegur, sökum minni tímasóunar, meiri einbeitingu að gagnadrifinni hagræðingu og því starfsmenn sveitarfélaga og opinberra stofnana gætu frekar framkvæmt sjálf útboðin, fremur en að neyðast til að sækja í kostnaðarsama aðstoð.

Ásamt því að einfalda allt opinbera innkaupaferlið, gerir Bidd vefurinn aðilum kleift að fá sem mest úr því, með því að læra af viðskiptunum og hagnýta gögnin sem verða til. Bidd vefurinn mun bjóða upp á beina API tengingu í gagnagrunnana okkar og geta aðilar þannig sjálfir stundað sína gagnaúrvinnslu með tengingu í kerfin okkar. Ásamt því ætlum við að vera leiðandi á hagnýtingu útboðsgagna. Ber þar helst að nefna að við ætlum að fylgjast með ,,markaðs-trendum” og upplýsa aðila um möguleg hagræðingartækifæri í opinberum rekstri, sem dæmi með sameiningu útboða, ásamt því að búa til miðlægan kostnaðaráætlunar gagnagrunn. Gagnagrunnurinn mun virka þannig að hann greinir, á grundvelli tilboðum verktaka, hvað sanngjarnt markaðsverð á hinum ýmsu hrávörum og vinnu er, sem mun gera aðilum kleift að áætla kostnað mun betur en hægt er í dag.

What it does

Bidd er nýtt stafrænt markaðstorg fyrir útboð á Íslandi, hannað með það í huga að einfalda og sjálfvirknivæða hvernig stofnanir og fyrirtæki sækja sér utanaðkomandi aðstoð. Með notkun á máltækni, mun vefurinn m.a. geta búið til, eða aðlagað lýsingu á útboðum í samræmi við lög um opinber innkaup og skrifað verktakasamninga í samræmi við þarfir. Ásamt þessu mun vefurinn auðvelda utanumhald nauðsynlegra skjala og uppfærslu þeirra, auðvelda samskipti á milli útboðsaðila og geta metið styrk tilboða með tilliti til krafna verkkaupa. Þessi virkni er komin til eftir ítarlega þarfagreiningu fyrir markaðsaðila, á borð við Ríkiskaup. Þeirra helstu áherslumál eru að útrýma endurtekinni skriffinsku í útboðsferlinu og einblína á meiri virðisaukandi ráðgjöf, í samræmi við okkar áherslur. Hliðarafurð vefsins, eru gögnin sem verða til í útboðsferlinu, en mikil umræða hefur átt sér stað um notkun gagna til að stuðla að hagræðingu í opinberum innkaupum. Þessi gögn munu gera okkur kleift að fylgjast með markaðsþróun í rauntíma og sem dæmi betur nýtt stærðarhagkvæmni hins opinbera, með því að mæla með sameiningu útboða ef margar opinberar stofnanir eru að auglýsa eftir samskonar vörum eða vinnu. Ásamt þessu verður hægt að búa til mun ítarlegri og nákvæmari kostnaðaráætlanir, með því að greina betur tilboð tilboðsgjafa, og geta þannig myndað gagnagrunn um sanngjarnt markaðsverð hinna ýmsu afurða, með vinnu verktaka innifaldri. Vara sem fer í þróun eftir útgáfu útboðsvefsins, verður greining á kolefnisfótspori tilboða. Samskonar lausn hjá Timían (Origo) þar sem hægt er að halda auðveldlega um kolefnisbókhald. Hægt væri því að nota kolefnisfótspor tilboðs sem valforsendu í vali á verktaka.

How we built it

Ítarleg þarfagreining með aðstoða opinberra aðila hefur gert okkur kleift að finna leiðir til að betrumbæta núverandi útboðsferli. Máltækni og gervigreindarlíkön verða þróuð með notkun á gömlum opinberum innkaupagögnum, sem finna má m.a. á mælaborðum ýmissa sveitarfélaga og á rikisreikningur.is. Loks verður líkanið einnig þannig að það lærir af nýjustu gögnum, þannig líkanið er í stanslausri þróun þegar viðskipti eru að eiga sér stað á vefnum. Í þróun er nú vefþjónusta, byggð með REST api hugmyndafræðinni, sem mun gera opinberum aðilum kleift að beintengjast gagnagrunni Bidd og vinna úr gögnum sjálfir, eða nýta gagnaúrvinnslu Bidd.

Challenges we ran into

Að finna lausnir við vandamálum sem hið opinbera er að tæklast á við núna í núverandi ferli og að mynda rétt viðskiptasambönd, sem dæmi við Miðeind.

Accomplishments that we're proud of

Rafrænir samningar á vefnum, innskráning með rafrænum skilríkjum, samskiptatól vefsins og skjalageymsla verktaka eru allt hlutir sem við erum stoltir af. Einnig hlutum við styrk frá Rannís sem hefur gert okkur kleift að koma hugmyndinni á þetta stig.

What's next for Bidd útboðsvefur

Samstarf með Miðeind, þar sem máltæknilíkan verður þróað. Verið er að vinna í viljayfirlýsingu og von er á því að hafist verði handa á því í byrjun næsta árs. Við búumst við því að fyrstu útboð verði stofnuð á vefnum á næstu tveimur mánuðum og í kjölfar þess verður hægt að hagnýta mun betur gögn hins opinbera sem verða til í innkaupum. Til þess að vefurinn virki þó þarf að ríkja ákveðinn vilji hjá hinu opinbera til að nota sama útboðsvefinn. Í dag eru notaðir í það minnsta 4 mismunandi vefir og ef það heldur áfram verður erfitt að skapa umhverfi þar sem viðskipti hins opinbera bjóða upp á möguleika á hagnýtingu gagna.

Built With

Share this project:

Updates